Míkadó barnapeysa er prjónuð ofan frá og niður, í hring með mynsturprjóni.
Efni
Bamboo Wool frá Icewear Garn (skoða hér)
Einnig hægt að nota:
- Super frá Icewear Garn (skoða hér)
- Mitu frá Rauma (skoða hér)
- Double Merino frá Along Avec Anna (skoða hér)
- Katia Merino 100% (skoða hér)
ATH að skoða metrafjölda ef annað garn en uppgefið er notað.
Garnmagn - Bamboo Wool
Stærð |
Aðallitur | Aukalitir (5 litir) | Heildarmagn |
1-2 ára |
100 g |
50 g hver litur | 250 g |
2-4 ára |
100 g |
50 g hver litur | 250-300 g |
4-6 ára |
100 g |
50 g hver litur | 300 g |
6-8 ára |
150 g |
50 g hver litur | 350 g |
8-10 ára |
150 g |
50 g hver litur | 400 g |
Það sem þarf
• Hringprjónar nr. 4.5 (40 og 60/80 cm langir)
• Hringprjónar nr. 4 (60/80 cm langir)
• Sokkaprjónar nr. 4 og 4.5
• 1 hringlaga prjónamerki til að merkja upphhaf umferðar
• Nál til frágangs
Ummál
1-2 ára: 62,5 cm
2-4 ára: 65,5 cm
4-6 ára: 71 cm
6-8 ára: 76,5 cm
8-10 ára: 80 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 22 lykkjur á prjóna nr. 3.5 gera 10 cm.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.