MÓA lambhúshetta & vettlingar
MÓA lambhúshetta & vettlingar
MÓA lambhúshetta & vettlingar
MÓA lambhúshetta & vettlingar
MÓA lambhúshetta & vettlingar
MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, MÓA lambhúshetta & vettlingar

MÓA lambhúshetta & vettlingar

STROFF
Listaverð
715 kr
Tilboð
715 kr
Listaverð
1.100 kr
Uppselt
Unit price
per 

Umsagnir prjónara

Enginn hefur skrifað umsögn enn. Smelltu hér til að skrifa umsögn

Húfan er prjónuð í hring til að byrja með, höfuðstykkið er prjónað fram og til baka og í lokin er húfan tengd aftur í hring.
Í vettlingunum er mynstrið eins og í lambhúshettunni nema nú prjónum við í hring. 

Við völdum að prjóna þetta sett úr Katia Merino Sport af því að garnið er einstaklega mjúkt, hlýtt og hentar vel í barnaflíkur - þar sem það má þvo það í þvottavél og setja svo í þurrkarann. Hið fullkomna garn í leikskólaflíkur sem þessar. 
Yndislega módelið á forsíðumyndinni er hún Móa frænka okkar, hún var að byrja í leikskóla og fékk þessa lambhúshettu og vettlinga til að fara með í leikskólann. Svo er hann yndislegi Kári okkar líka á myndunum, alveg að verða eins árs með tvær tönnslur í neðri góm. 

Efni
Þú getur valið á milli: 
- Katia Merino Sport - smelltu hér
- Maxi Soft frá Lana Gatto - smelltu hér. 

Litur á mynd er nr. 56 í Merino Sport. 

Húfa - stærðir og magn
6-12 mán 100 gr
12-18 mán 100 gr
18-24 mán 100 gr
2-4 ára 150 gr
Vettlingar - stærðir og magn
6-12 mán 50 gr
1-2 ára 50 gr
2-4 ára 50 gr
4-6 ára 100 gr
6-8 ára 100 gr


Húfa - það sem þarf
 - hringprjónn nr. 5 (40 sm)
 - hringprjónn nr. 4 (40 sm)
    - fyrir kantinn)
 - nál til frágangs
 - prjónamerki

Vettlingar - það sem þarf
 - Sokkaprjónar nr. 3 og 4,5
 - nál til frágangs
 - spotti af garni í öðrum lit til að setja þumallykkjur á

Húfa - ummál á húfuopi
6-12 mánaða: 32 sm
12-18 mánaða: 34 sm
18-24 mánaða: 35.5 sm
2-4 ára: 37 sm

Vettlingar - þvermál yfir handarbak
6-12 mánaða: 6.5 sm
1-2 ára: 7 sm
2-4 ára: 7.5 sm
4-6 ára: 8 sm
6-8 ára: 8 sm

Prjónfesta
Húfa
: 18 l á prj. nr. 5 = 10 sm
Vettlingar: 20l á prj. nr. 4.5 = 10 sm

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.