Skip to product information
1 of 5

STROFF

Nóra dömupeysa

Nóra dömupeysa

Listaverð 1.200 kr
Listaverð Sale price 1.200 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Peysan er prjónuð með gataprjóni og sléttu prjóni, ofan frá og niður, í hring með útaukningu í berustykki. 
Þessi peysa er langhlaup en ekki spretthlaup. Það tekur tíma að prjóna hana.
En hún er alveg hrikalega skemmtileg og ekki flókin þó skrefin séu mörg í berustykki. 

Efni
Merino 100% frá Katia.
  Einnig hægt að nota
  - Merinocot frá Lana Gatto og nota prjóna nr. 4
  - Feeling frá Lana Gatto á prjóna 4,5

Stærðir og magn af garni

Stærð Merino 100%
XS 500 gr
S 500 gr
M 600 gr
L 700 gr
XL 750 gr
XXL 800 gr


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4,5, 40 og 100/120 cm, fer eftir stærð peysu
- Sokkaprjónar nr. 4,5, fyrir stroff á ermi
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 44 cm
S: 46 cm
M: 48 cm
L: 50 cm
XL: 51 cm
XXL: 52 cm

Ummál á bol
XS: 101 cm
S: 112 cm
M: 115 cm
L: 120 cm
XL: 130 cm
XXL: 140 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 34 cm
S: 36 cm
M: 38 cm
L: 40 cm
XL: 41 cm
XXL: 42 cm

Ummál á ermum
XS: 32 cm
S: 33 cm
M: 34 cm
L: 36 cm
XL: 40 cm
XXL: 44 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 21 lykkja á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% 

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Sjá allar upplýsingar