
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Umferð byrjar aftan á húfu.
Efni
Katia Merino Baby (smelltu hér)
Stærðir og magn af garni
NB: 50 gr
3-6 mán: 50 gr
6-12 mán: 50 gr
1-2 ára: 50-100 gr
2-4 ára: 100 gr
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf
- hringprjónar nr. 3,5 (40 sm)
- sokkaprjónar nr. 3,5
- nál til frágangs
- prjónamerki
Ummál
NB: 31 sm
3-6 mán: 33 sm
6-12 mán: 34 sm
1-2 ára: 35 sm
2-4 ára: 37 sm
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 26 lykkjur (stroffprjón) á prjóna nr. 3,5 gera 10 sm með því að nota Merino Baby frá Katia
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.