Skip to product information
1 of 9

STROFF

Örkin jólakjóll

Örkin jólakjóll

Listaverð 1.200 kr
Listaverð Sale price 1.200 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Örkin jólakjóll
Erfiðleikastig: Krefjandi

Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður. Fyrst er hann prjónaður fram og til baka með mynsturprjóni í framstykki og er svo tengdur í hring seinna í ferlinu. Kjóllinn er hnepptur í bakið. 

Efni
Along Avec Anna (fæst hér)
Einnig er hægt að nota:

  • Merino frá Knitting for Olive (fæst hér)
  • Cotton Merino frá Knitting for Olive (fæst hér)
  • Lanett frá Sandnes 
  • Baby Merino frá Drops
  • My Fine Wool frá Gepard (fæst hér)
  • Baby garn frá Rauma (fæst hér)
  • Yaku frá Camarose

Stærðir og magn af garni
3-6 mán: 100 g
6-12 mán: 150 g
12-18 mán: 150 g
18-24 mán: 150-200 g
2-4 ára: 200 g

Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 3 (60 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 3
- Nál til frágangs
- 12 mm tölur (5-10 stk)
- Borði til að þræða í mittið (6 mm breiður)

Ummál bolur
3-6 mán: 45 cm
6-12 mán: 48 cm
12-18 mán: 51 cm
18-24 mán: 52 cm
2-4 ára: 55 cm

Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 28 lykkjur á prjóna nr. 3 gera 10 cm með því að nota einn þráð af fingering garni.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Sjá allar upplýsingar