Skip to product information
1 of 10

STROFF

Restar afgangapeysa

Restar afgangapeysa

Listaverð 720 kr
Listaverð 1,200 kr Sale price 720 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Restar er prjónuð neðan frá og upp með „drop shoulders“ og box sniði. Bolurinn er stuttur og víður og ermar víðar. 

Peysurnar á myndum eru allar prjónaðar úr afgöngum. Ég mæli með að nota afganga í þessa peysu og leika ykkur með samsetningu á litum.

Erfiðleikastig
2 - snúin, en ætti að henta flestum þeim sem kunna að prjóna peysur

Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 7 (40 og 100 cm)
- Hringprjónar nr. 5.5 (40 cm / 60 cm fyrir þá sem vilja fyrir hálsmál)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki 3 stk

Prjónfesta
14 lykkjur og 18 umferðir = 10 x 10 cm.

Áður en þú byrjar

Listin að leika sér með afganga
Að vinna með afganga er ekki bara hagstætt og gott fyrir umhverfið heldur er það líka svo ótrúlega skemmtilegt! Ég mæli eindregið með því að nota afganga í þessa peysu. Ef garnið er misgróft er alltaf hægt að bæta aukaþræði eða þráðum við fínni þræðina. Svo má líka alveg kaupa einn og einn lit til þess að fá hina fullkomnu „afgangapeysu“!

Litasamsetningar
Þar sem þessi peysa byggist aðallega á röndum þá er hægt að leika sér mikið með liti og hafa rendurnar í mismunandi þykktum. Í þeim pörtum sem notaðir eru tveir litir þarf að hafa kontrastinn á milli lita þannig að mynstrið sjáist.

Val á stærð á peysu
Stærðirnar snúa bæði að lengd og ummáli á peysunni. Sumir eru langir og grannvaxnir með lítil brjóst á meðan aðrir eru lágvaxnir, þéttari í vexti og með stór brjóst (og svo er allt þar á milli).

Ég mæli með að skoða vel ummálið á peysunni (mæla yfir breiðasta partinn af búknum sem er annað hvort brjóst eða mjaðmir) og hafa svo lengdina eftir þörfum. Það sama á við um lengd á ermum.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 


Sjá allar upplýsingar