Umsagnir prjónara
RÖSKVA rúllukragapeysa er hrikalega töff - uppskriftin er einföld og skýr og hentar öllum prjónurum, byrjendum sem lengra komnum.
Bolurinn er prjónaður neðan frá og upp, í hring.
Efni:
Smart frá Sandnes garn en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna 4-4,5, t.d. Katia Merino 100%
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4.5
- Sokkaprjónar nr. 4 og nr. 4.5
- 6-8 tölur (þarf ekki tölur – þær eru til skrauts)
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki
Stærðir og magn af garni:
1-2 ára: 250 gr
2-4 ára: 300 gr
4-6 ára: 350-400 gr
6-8 ára: 450 gr
8-10 ára: 500 gr
Skammstafanir:
sl: slétt prjón
br: brugðið
umf: umferð
l: lykkja/lykkjur
sm: sentímetrar
PM: prjónamerki
Lengd á bol:
1-2 ára: 23 sm
2-4 ára: 26 sm
4-6 ára: 32 sm
6-8 ára: 36 sm
8-10 ára: 39 sm
Ummál á bol:
1-2 ára: 60 sm
2-4 ára: 66 sm
4-6 ára: 70 sm
6-8 ára: 75 sm
8-10 ára: 80 sm
Lengd á ermum (frá handvegi, með stroffi)
1-2 ára: 19 sm
2-4 ára: 21 sm
4-6 ára: 25 sm
6-8 ára: 32 sm
8-10 ára: 37 sm
Ummál á ermum
1-2 ára: 18 sm
2-4 ára: 20 sm
4-6 ára: 22 sm
6-8 ára: 22 sm
8-10 ára: 24 sm
Prjónfesta:
Mynstur: 22 lykkjur á prjóna nr. 4.5 = 10 sm
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.