Skip to product information
1 of 5

STROFF

Siglufjörður kragi

Siglufjörður kragi

Listaverð 900 kr
Listaverð Sale price 900 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

SIGLUFJÖRÐUR kragi er einstaklega huggó og einfaldur í framkvæmd. Hann er prjónaður í hring með tvíbandaprjóni. Kraginn passar við öll dressin sem þú átt og er tilvalinn sem auka skjól fyrir hálsakotið.

Garntegund
Sterk frá Dale Garn. Fæst m.a. í A4 og Hagkaup.

Stærðir og magn af garni
Ein stærð og ein dokka af hverjum lit. Einnig hægt að nota aðeins tvo liti og þá þarf sitthvora dokkuna af hvorum lit.

Það sem þarf.
- Hringprjónn nr. 4.5 (60 cm)
- Sokkaprjónar nr. 4.5 fyrir snúru
- Nál til frágangs
- Prjónamerki 1 stk

Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 22 lykkjur á prjóna nr. 4.5 gera 10 cm 

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Sjá allar upplýsingar