Skip to product information
1 of 7

STROFF

Skorri hálsaskjól

Skorri hálsaskjól

Listaverð 600 kr
Listaverð Sale price 600 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Skorra hálsaskjól er einfalt og skemmtilegt að prjóna. Skýlir hálsum, og fer vel með öllu.

Skorri er prjónaður ofan frá og niður og í hring. Hálsmálið sjálft er broken rib en berustykkið er perluprjón.

Efni
Merino 100% frá Katia.
Einnig er hægt að nota Feeling frá Lana Gatto á sömu prjóna­stærð, eða Merinocot á prjóna nr 3,5.

Mohair útgáfa - fyrir þá sem vilja nota mohair í Skorra er t.d. hægt að nota Katia Merino Baby eða VIP frá Lana Gatto + mohair, einn þráð af hvoru. 

Garnmagn
6-12 mán: 50 g
1-3 ára: 50 g
4-8 ára: 100 g
9-12 ára: 150 g

ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf.
- Hringprjónn nr. 4, 40 cm
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 24 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% frá Katia.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Sjá allar upplýsingar