Umsagnir prjónara
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring með gatamynstri. Eyrun eru prjónuð eftir á.
Efni
Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto með Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto eða 50 Shades of Mohair frá Katia.
Stærð | Feeling eða Merino 100% | Mohair |
Nýburi | 50 g | 25 g |
3-6 mán | 50 g | 25 g |
6-12 mán | 50 g | 25 g |
1-2 ára | 100 g | 25 g |
2-4 ára | 100 g | 25 g |
4-8 ára | 100 g | 25 g |
Ummál húfu
Nýburi: 33 cm
3-6 mán: 35 cm
6-12 mán: 38 cm
1-2 ára: 40 cm
2-4 ára: 42 cm
4-8 ára: 43 cm
Það sem þarf:
- Hringprjónar nr. 4.5 (40cm)
- Sokkaprjónar nr. 4.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 22 lykkjur á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% og einn þráð af mohair.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.